Undirsíðukubbur

Auglýsing

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leikur dagsins

Könnun

Er það siðlaust að bankarnir auki hagnað sinn á kostnað fólks í landinu til þess að nokkrir menn geti enn aukið við tilgangslausan munað sinn?

Leit

Hvað veit ég um þig?

13. nóvember 2006 klukkan 23:15
1. miðnafnið þitt:
2. Aldur:
3. Single or Taken:
4. Uppáhalds bíómynd:
5. Uppáhalds lag:
6. Uppáhaldshljómsveit:
7. Dirty or Clean:
8. Tattoo eða göt:
9. Þekkjumst við persónulega?
10. Hver er tilgangurinn með lífinu?
11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?
12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?
13. Besta minningin þín um okkur?
14. Myndir þú gefa mér nýra?
15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:
16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veikur?
17. Getum við hist og bakað köku?
18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?
20. Finnst þér ég góð manneskja?
21. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið?
22. Finnst þér ég aðlaðandi?
23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?
24. Í hverju sefuru?
25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?
26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?
27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?
28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?
Snorri Óttarsson
Almennt | 2 athugasemdir

Engar skuldir hærri laun

09. nóvember 2006 klukkan 05:53

Viltu hjálpa þúsundum hungraðra barna og gera þeim kleift að fá eins sjálfsagðan hlut og að borða? Kíktu þá á http://www.engarskuldir.com/

Snorri Óttarsson
Almennt | Engin athugasemd

Viltu gera gagn???

30. október 2006 klukkan 04:09

Viltu hjálpa þúsundum hungraðra barna og gera þeim kleift að fá eins sjálfsagðan hlut og að borða? Kíktu þá á http://www.engarskuldir.com/
Snorri Óttarsson
Almennt | Engin athugasemd

Leið/leiður á skuldasúpunni???

28. október 2006 klukkan 18:02
Ef þú ert leið/leiður á því að ná aldrei saman endum um mánaðarmótin? Ein af mörgum leiðum ti að losna er að gerast áskrifandi af vitameal. Þá gerist þrennt. Þú gefur hungruðum börnum mat, losnar við súpuna og hjálpar öðrum við það sama, þ.e.a.s. að losna úr skuldasúpunni. Kíktu nánar á þetta á slóðinni á síðunni minni, http://www.engarskuldir.com/
Snorri Óttarsson
Almennt | Engin athugasemd

Gera fangelsi í nútíma mynd eitthvað gagn?

08. október 2006 klukkan 06:48
Hvað græðum við á fangelsum eins og þau eru í dag og eru búin að vera síðan farið var að nota þau? EKKERT!!!! Hversvegna segi ég það? Vegna þess að fólk kemur verr út en það fór inn, allavega ekki betra. Þetta á að heita betrunarvist og það þýðir að það á að taka þá eistaklinga úr umferð sem ekki geta talist nýtir þegnar og gera úr þeim "nýta" þegna. Barnanýðingar eru þeir mest fyrirlitnu glæpamenn í nútíma samfélagi okkar. Ég get vel sett mig í þau spor foreldra sem eiga börn, vegna þess að ég á sjálfur 3, sem hafa lent fyrir barðinu á barnanýðingum og mun ég fyrilíta þá jafnmikið ef mín börn yrðu misþyrmt svo grimdarlega svo að ég mun ekki dæma foreldrana sem vilja allt illt fyrir þessa glæpamenn. Ekki vilja foreldrar vita af þeim inn á góðum vistarverum með fyrirmyndar svefnaðstæðum og góðan mat. Þau hugsa að sjálfsögðu hverskonar réttlæti er það fyrir mitt barn að bera þau ör það sem það á eftir ólifað en glæpamaðurinn hefur það gott inn á hrauninu á meðan. Tveimur árum seinna sleppur hann svo út "laus" allra mála, ef hann nær þá tveimur árum inni. Það verður að sjálfsögðu að taka þessa menn og konur úr umferð vegna þess að það er ekki hægt að láta þau ganga lausa skiljandi eftir sig sviðna jörð hvar sem þau fara. Ég veit ekki hvað á að kalla þetta en köllum þetta sjúkdóm. Alla sjúkdóma verður að meðhöndla. Eyðni og krabbamein höfum við verið að meðhöndla í þó nokkurn tíma og í dag er betra að lifa með þessum sjúkdómum. En sú þrautaganga hefur tekið langan tíma og það er enn langt í land með fullnaðarsigur á þeim. Þannig er það eins með þennan sjúkdóm. Fyrst er að læra að lifa með honum og átta okkur á honum því hann er til staðar allstaðar í samfélaginu okkar og síðan sigran hann til fulls. Og það er gert með því að hjálpa því fólki sem á við þennan sjúkdóm að stríða. Og koma þannig í veg fyrir að börn okkar verði fyrir barðinu á þeim. En þá verða sjúklingarnir að fá að gefa sig fram og biðja um hjálp. En í samfélagi eins og okkar þar sem mikil reiði er gagnvart þessum sjúklingum og ég ýtreka það að ég dæmi ekki þessa reiði þá er lítil von að þeir gefi sig fram og þar af leiðir að fleiri börn en ella þurfa að þjást þeirra vegna. En við megum samt ekki gleyma okkar ábyrgð. Okkar reiði meinar þeim að gefa sig fram. Þar af leiðir að börn okkar þjást þá einnig okkar vegna. Leyfum þessu fólki að gefa sig fram, finnum leiðir til að hjálpa þeim og losum okkur við þennan viðbjóð úr samfélaginu okkar.
Snorri Óttarsson
Almennt | Engin athugasemd

Glæpir

25. september 2006 klukkan 18:06

Glæpir eru búnir að vera viðloðandi við mannkynið allan þann tíma sem það hefur verið til. Við fremjum glæpi vegna þess að okkur finnst að það vannti eitthvað í líf okkar og gerum hvað sem er til að fylla upp í skarðið þó svo það valdi öðrum óhamingju fyrir vikið. Við vitum ekki alltaf hvað það er sem okkur vantar til fylla upp í skarðið en erum samt alltaf tilbúin að gera hvað sem er.


Við höfum samt aldrei reynt að koma í veg fyrir glæpi. Einungis refsað fyrir þá eftir á. En gerir það eitthvað gagn?


Það tekur jú glæpamenninna (og konunar) úr umferð til skamms tíma en er svo sett út í samfélagið án þess að bót hafi verið gerð á þeirra málum. Eiturlyfjasjúklingum er hennt í steininn í nokkra mánuði fyrir að hafa í fórum sínum eiturlyf. Þegar þeim er svo sleppt halda þau uppteknum hætti.


Er einhver hagnaður í þessu hvort sem um ræðir sjúklinginn eða samfélagið?


Það er sagt að það sé ekki hægt að hjálpa neinum ef hann vill ekki fá hjálp. Það á að eyða peningum og tíma í það að fá fólk sem á í vanda, t.d. eiturlyfjavanda að vilja fá hjálp og hjálpa því svo.


Rekstur fangelsa er dýr og í samfélagi þar sem alltaf á að vera að spara á að eyða peningum og tíma í að aðstoða fólk í vanda. Ekki senda fólkið inn og út úr fangelsum og láta það svo spóla í sömu drullunni ár eftir ár, áratug eftir áratug valdandi sér og öðrum eintómri vansæld. Því að nota peninga á þennan hátt mun auka vegsemd samfélagsins sem fangelsi gera ekki. Fangelsin eru bara kostnaður.

Snorri Óttarsson
Almennt | Engin athugasemd

Samræður við Guð

24. september 2006 klukkan 14:59
Ég er að lesa aðra bók í 3ja bókaflokk sem heita samræður við Guð. Það koma margar áhugaverðar pælingar þarna fram um lífið og tilverun hér hjá okkur mönnunum. Ég mæli tvímælalaust með að fólk lesi þessar bækur ef ekki til að meðtaka það sem í þeim stendur og tileinka sér þá bara til að sjá aðra sýn á lífinu.
Snorri Óttarsson
Almennt | Engin athugasemd

Fíkn orðið vandamál

24. september 2006 klukkan 14:18
Ef fólk er að spá í það hvenær fíkn er orðið alvarlegt vandamál þá er gott að miða við það að þegar fólk þarf að velja á milli lífsnauðsynlegrara nauðsynja og þess sem fíkn er í og velur fíknina þá er fíkn orðin vandamál. Dæmi: Það er vika eftir af mánuðinum, og fíkilinn á eftir 5000 kr. Þá er það spurning (sem á ekki að vera spurning en...) hvort á kaupa brennivín fyrir helgina eða mat fyrir vikuna. Ef valið er brennivín þá er um vandamál að ræða. Dæmi 2: Fíkilinn á í vandræðum með innbyrgða reiði sem springur út í hvert sinn sem drukkið er áfengi. Fjölskyldumeðlimir, maki og börn verða fyrir andlegu og/eða líkamlegu ofbeldi í hvert sinn sem drukkið er. Fikn er semsagt orðin vandamál þegar fólk stendur frammi fyrir vali og velur þann kost sem veldur vanlíðan hjá sjálfum sér og öðrum. Þá verður viðkomandi að leita sér aðstoðar. Það er ekkert vandamál svo stórt að ekki sé hægt að leysa það. Það er frekar skortur á vilja til þess að leysa vandamálið.
Snorri Óttarsson
Almennt | Engin athugasemd

Hraðakstur = ótímabær dauðsföll

19. september 2006 klukkan 15:54

Eins og talað er um þau ótímabæru dauðsföll í umferðinni þá er hraðanum alltaf kennt um. Orkuveituhúsnæðið fór ekki nema um 4 milljarða frammúr áættlun. Þeir peningar hefðu alveg getað farið í vegasamgöngur. Fólk er endalaust að biðja um eitthvað sem því finnst skipta alveg gríðalega miklu máli. Til dæmis yfirbyggðar íþróttahallir fyrir hvort sem um ræðir menn eða skepnur og þannig er hægt að halda áfram að telja upp "lífsnauðsynlega" hluti sem alltaf vantar.


En svo eru til hlutir sem alltaf eru látnir sitja á hakanum. T.d. eru enn 4 einbreiðar brýr á milli Reykjavíkur og Akureyrar. Það vælir enginn um að því þurfi að breyta.


Það er ekki hraðinn sem drepur heldur val okkar á nauðsynjum. Hvernig væri að hætta að væla um hestahallir, íþróttahallir, listasöfn og tónleikahús og fara að setja peninga í það sem skiptir máli, t.d. vegasamgöngur? Fólk verður að átta sig á því að það er ekki hægt að gera allt. Fjármagnið sem er til er takmarkað Því verður að velja vel.

Snorri Óttarsson
Almennt | Engin athugasemd

Að fá bætur frá skaðvaldi, Peningar fyrir líf!!!!!!!!!!!!

14. september 2006 klukkan 02:58
Það finnst mörgum alveg fáránleg hugmynd að fá pening í staðinn fyrir það líf sem tapaðist. Dæmi: Bíll A) drukkinn bílstjóri. Bíll B) Foreldra og ungabarn. Bíll A keyrir á bíl B með þeim afleiðingum að ungabarnið deyr. Foreldrarnir fara fram á skaðabætur fyrir barnið. Og þá hugsar fólk, Ekki fær það barnið til baka þó að það fái pening frá skaðvaldinum.

En það er ekki málið. Fólk þarf tíma til að syrgja auk þess sem útför kostar sitt. Fólk gæti ekki farið að vinna nokkrum dögum eftir að barnið deyr en í mörgum til fellum þarf það alveg öruglega að gera það því að ekki bíða reikningar eftir fólki. Þá þarf að borga.

Fólk þarf að fá sinn tíma til að syrgja og þá er það að mínu mati í þessu dæmi drukkni bílstjórinn að borga reikninga foreldrana. Það var hans val að fara drukkinn upp í bílinn.
Snorri Óttarsson
Almennt | Engin athugasemd